Sagan á bak við verkefnið

Um Mýsildal

Lítið sveppaverkefni á Höfn, byggt upp með rannsóknum, tilraunum og þolinmæði.

Rannsóknarvinna og skráning hjá Mýsildal

Frá forvitni að uppskeru

Hvernig hugmyndin kviknaði

Hugmyndin að Mýsildal spratt úr áhuga á sjálfbærri matvælaframleiðslu og íslensku grænmeti. Þegar farið var að skoða svepparækt á Íslandi opnaðist fljótt mun stærri heimur — heimur sveppaþráða, örvera, hráefna og vistkerfa sem starfa oft óséð undir yfirborðinu.

Rannsóknir leiddu yfir í tilraunir og tilraunirnar loks í fyrstu uppskerurnar. Samhliða því breyttist sýnin á matvælaframleiðslu. Gegnsæi í ræktunarferlinu, nýting hráefna og lífræn framleiðsla fóru að skipta sífellt meira máli.

Heilbrigt mýsil í ræktunarfötu
Heilbrigt mýsil að nema undirlagið.

Nafnið

Mýsill og dalur

Nafnið Mýsildalur er samsett úr orðunum mýsill — sveppaþræðirnir sem mynda grunn sveppsins — og dalur. Grænn dalur fullur af plöntum og trjám er ein skýrasta mynd náttúrunnar. Undir yfirborðinu vinna sveppir og sveppaþræðir eitt mikilvægasta starf vistkerfisins.

Þegar ræktunarföturnar eru komnar inn í ávaxtunarrýmið, þar sem rakastig og hitastig líkja eftir náttúrulegum vaxtarskilyrðum, verður rýmið á sinn hátt að litlum dal fullum af mýsli.

Nám, rannsóknir og þróun

Að prófa, skrá og bæta

Síðan hafa fylgt fjölmargar rannsóknir, ræktunartilraunir og samtöl við aðra svepparæktendur. Með tímanum hefur skapast skýrari mynd af því hvaða aðferðir virka best og hvernig nýta má hliðarafurðir annarra iðnaða sem hráefni í ræktun.

Samhliða tilraunavinnunni stundaði Agnar nám hjá GroCycle, meðal annars í lágtækniræktun og ræktun með sæfðum vinnubrögðum. GroCycle er þekkt breskt fyrirtæki á sviði sælkerasveppa, fræðslu og stuðnings við smærri ræktendur.

Því dýpra sem verkefnið fór inn í fjölbreyttan heim sveppanna, því fleiri spurningar komu upp. Það er enn stór hluti af Mýsildal: að prófa, skrá, læra og bæta vinnubrögðin skref fyrir skref.

Agnar við vinnu með grain spawn

Maðurinn á bak við verkefnið

Um Agnar

Agnar er fjölskyldumaður með áhuga á eldamennsku, sjálfvirkni og nýtingu náttúrulegra hráefna. Verkefnið hefur með tímanum ýtt undir sjálfbærari hugsun, meðvitaðri matargerð og meiri virðingu fyrir ferlinu á bak við matinn.

Mýsildalur er byggður upp samhliða fjölskyldulífi, vinnu og öðrum verkefnum. Þess vegna mun hann halda áfram að vaxa á þeim hraða sem lífið og náttúran leyfa.

Næsta skref

Kynntu þér ræktunina

Mýsildalur er enn í þróun. Á meðan má skyggnast inn í ferlið, tilraunirnar og sveppategundirnar sem verkefnið vinnur með.